Þrír æfingafélagar búnir

Það var rosalega stór dagur fyrir okkur í dag.  Við Eyrún fengum hana Jónínu til að kenna okkur að tala við 3 æfingarfélaga og það heppnaðist rosalega vel.  Við töluðum við þrjú mismunandi pör.

Fyrst fórum við og ræddum við fólk á svipu reiki og við erum og þekkjum vel og þau höfðu sitt hvorn áhugann á Herbalife hún hafði áhuga á því að léttast og vera fitt á meðan hann hafði ekki áhuga fyrr en við fórum að ræða um launin hennar Jónínu.  En og aftur kemur ótrúlegur kostur þessa tækifæris í ljós nánast allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi í þessu. Mín niðurstaða er sú að stelpan kemur í heilsuklúbbinn hjá okkur en hann þarf meiri tíma til að sannfærast.

Síðan fórum við og hittum fólk sem er á sama aldri og mamma og pabbi eða kringum 50 ára, bæði höfðu þau prufað Herbalife fyrir ca 7-8 árum og voru ekki sátt þá og voru til í að prufa þetta aftur.  Það sem þeim fannst verst við þetta fyrir öllum þessum árum var að þau fengu ekki nægjanlegt aðhald frá þeim sem seldi þeim og það óskuðu þau hreinlega eftir frá okkur.  Ég benti þeim sérstakega þá konunni hvort hún væri ekki til í að stofna sér heilsuklúbb fyrir konur á svipuðum aldri og hún væri, hún hélt það nú og verður "kick off" hjá henni kl 19:30 á morgun.  Ég er mjög spenntur að sjá hvernig það virkar sérstaklega með hinar sem hún var að tala um að bjóða. Mín niðurstaða þau koma bæði til með að kaupa vöruna og nota hana og það stendur og fellur með okkur hversu dugleg við verðum að veita þeim þjónstu og aðhald.

Síðasta parið sem við hittum var fólk sem við þekkjum líka mjög vel og hún er þegar byrjuð að nota vöruna frá okkur og líkar bara held ég vel við hana og hefur ákveðna trú á henni.  Hins vegar er það hann sem mig langar að koma á vörurnar því ég held að hann mundi koma til með að öðlast hreinlega nýtt líf með þeim.  Hann er svona svipaður og ég var, borðaði ekki nema á kvöldin og mjög óreglulega og hann á við þreytu og slen að stríða eins og fleiri sem ekki borða morgunmat eða óreglulega.  Mín niðurstaða það þarf að gefa honum aðeins meiri tíma, ég kem samt með tímanum að fá hann til að prufa og um leið og hann prufar það snýr hann ekki aftur.

Þessi dagur var frábær og vonandi að þetta sé bara upphafið af því sem koma skal.

Speki dagins: Við erum ekki að kenna fólki á kúr heldur lífsstíl til framtíðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband