Herbalife sölufólk vs vottar jehova

Ég verið að selja Herbalife vörurnar núna í 6 mánuði og verið með þessa síðu í 4 mánuði.  Á þessum tíma hef ég heyrt fólk kalla okkur sem seljum Herbalife sölufólk dauðans, votta jehova, óþolandi sölufólk og svona mætti lengi halda áfram. Ég get ekki sagt annað en að ég skilja vel þá sem láta svona því ég var í þeirra sporum fyrir 7 mánuðum og flesta allir aðrir sem eru að selja Herblife í dag hafa verið í þessum sporum. þ.e. að hata herbalife sölumenn.

Síðan eftir að maður hefur prufað með opnum huga og vilja þá kemst maður að því að þessar vörur eru bara það góðar að þú vilt fá sem flesta til þess að prufa og nota.  Mitt markmið er alltaf að aðstoða fólk. Ég á t.d. mjög auðvelt með að bjóða þessar vöru fólki sem er mjög grannt líkt og ég.  Jafnfram finn ég mjög mikinn orkumun því áður fyrr borðaði ég t.d. ALDREI MORGUNMAT en núna fer ég varla úr húsi á morgnanna án þess að fá mér einn góðan sheik.  Þessi morgun sheik er hreinlega það sem heldur mér gangandi því hann kemur reglu á svo margt í líkamanum. Á miðvikudaginn vorum við með heilsuklúbb og ég var svo ánægður þegar ein af konunum sem hefur ekki borðað morgunmat eins og ég gerði fann sömu áhrif þ.e. gríðarlegur orkumunur.  Ég get varla lýst ánægju tilfinningunni sem kom yfir mig þegar ég uppgötvaði það að ég hafði hjálpað einhverjum með sama vandamál og ég hafði.

Ég fór þá að spá hvort það sé ekki svipað fyrir Vottana sem eru að reyna að hjálpa fólki með því að kynna guð og hvernig þeir nota guð og guðsorð til að hjálpa sér. Um leið og þeir sjá að þeir geti hjálpað einum þá fá þeir örugglega ólýsanlega ánægju tilfinningu.

Þannig að þegar einhver segir að ég sé eins og Votta jehovi þá segi ég bara já takk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viktoría Rán Ólafsdóttir

Ég myndi líka taka því sem hóli. 

Viktoría Rán Ólafsdóttir, 24.8.2007 kl. 14:40

2 identicon

Þetta er nú með fyndnara sem ég hef séð, ég mæli með að þú geymir þetta vel svo þú getir séð seinna hversu blindur þú varst og hlegið líka með okkur hinum sem skemmtum okkur yfir því að hlægja núna!

Venlig hilsen

Bin þer donn þett! 

Bin þer done þett (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband